Fréttir

Leiklistarhátíðin Lókal í Borgarleikhúsinu

Daganna 3. - 6. september verður leiklistarhátíðin Lókal í Reykjavík

1.9.2009

Daganna 3. -6. september verður leiklistarhátíðin Lókal haldin í annað sinn á Íslandi og teygir hún sig um allt höfuðborgarsvæðið. Að þessu sinni er sviðsljósinu beint að innlendri leiklist og hún kynnt fyrir erlendum gestum hátíðarinnar. Skoðuð verða ný íslensk leikverk sem reyna á þanþol listarinnar og krefja áhorfendur um afstöðu  til líðandi stundar. Borgarleikhúsið á tvö leikverk á hátíðinni sem verða sýnd 5. og 6. september á Litla sviði Borgarleikhúsins. Dauðasyndirnar  (The Deadly sins) og Þú ert hér (You are here) hlutu verkin bæði tilnefingu til Grímunnar sl vor sem leikverk ársins. Í tilefni erlendu gestanna verða sýningarnar fluttar á ensku.

 

Dauðasyndirnar sýnt laugardag 5. sept kl. 13.00

Þú ert hér sýnt  laugardag 5. sept kl. 22.00 og sunnudag 6. sept kl. 20.00

Allar sýningarnar verða leiknar á ensku.

Ekki missa af þessu einstaka tækifæri á að sjá markverðustu leiksýningar síðasta leikárs.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica