Fréttir

Frumsýning á Harry og Heimi - með öðrum morðum á laugardag

Einkaspæjararnir vinsælu loksins á svið

9.9.2009

 

Harry-&-HeimirFyrsta frumsýning leikársins 2009-2010 í Borgarleikhúsinu er laugardaginn 12. september á verkinu Harry og Heimir – með öðrum morðum. Hér er á ferðinni sannkallað háspennuverk um einkaspæjarana röggsömu, Harry Rögnvalds og Heimi Schnitzel en útvarpsþættir um þá félaga voru fyrst á dagskrá Bylgjunnar árið 1988 og nutu fádæma vinsælda. Þar voru á ferð þrír af ástsælustu leikurum þjóðarinnar sem settu saman sprenghlægilega gamanþætti sem nýttu alla töfra útvarpsins. Verkið spratt úr heimi útvarpsleikhússins, þar sem hljóðeffektar og dramatísk tónlist hljómaði undir leiknum senum í melodramatískum stíl.  Þegar útvarpsþættirnir voru gerðir voru leikararnir þrír um það bil að verða vinsælustu gamanleikarar landsins. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar en þeir Siggi, Örn og Kalli hafa sem kunnugt er verið uppistaðan í vinsælasta sjónvarpsefni Íslandssögunnar, Spaugstofunni sem þjóðin hefur hlegið dátt að á laugardagskvöldum í rúm 20 ár.

 

Höfundar og leikstjórar: Karl Ágúst Úlfsson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason

Leikmynd og búningar: Snorri Freyr Hilmarsson

Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen

Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson

Gervi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir

Leikarar: Karl Ágúst Úlfsson , Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica