Vís og Borgarleikhúsið undirrita samstarfssaming
VÍS máttarstólpi Borgarleikhússins
Það var mikil eftirvænting í Borgarleikhúsinu á miðvikudagskvöldið þegar starfsfólk VÍS flykktist í leikhúsið með fjölskyldur sínar á sýningu Borgarleikhússins, Söngvaseið. Tækifærið var notað fyrir sýningu til að undirrita nýjan samstarfssamning milli VÍS og Borgarleikhússins en VÍS hefur verið einn af máttarstólpum leikhússins undanfarin ár.
Það er mikilvægt fyrir Borgarleikhúsið að vera í góðu samstarfi við fyrirtækin í landinu og eru báðir aðilar afar ánægðir með samstarfið. Einnig verður VÍS aðal samstarfsaðili Borgarleikhússins í tengslum við jólasýningu hússins Faust – sem sett er upp í samvinnu við Vesturport. Verkið er ný leikgerð unnin uppúr þjóðsögunni um Dr. Faustus en það er
Gísli Örn Garðarsson sem leikstýrir verkinu og er mikils að vænta þar sem uppsetningar Gísla eru þekktar fyrir að vera heilmikið sjónarspil. Það er afar ánægjulegt að þrátt fyrir erfitt efnahagsástand hafa flest samstarfsfyrirtækin endurnýjað samstarfssamningana nú í haust og ný jafnframt bæst við. Stuðningur þessara fyrirtækja gera leikhúsinu kleift að bjóða upp á afar fjölbreytta dagskrá á því leikári sem nú er nýhafið.
