"Þvílík snilld og þvílík skemmtun"
Áhorfendur halda ekki vatni og gagnrýnandi lofar sýninguna.
Það er alltaf mikil spenna fyrir frumsýningu.Og fyrir frumsýningu á Harry og Heimi var það háspenna - enda sprenghlægilegt spennuverk á ferðinni. Forsýningar kvöldin fyrir frumsýningu gáfu góð fyrirheit - mikið hlegið og áhorfendur tóku gríni þeirra félaga, Kalla, Sigga og Arnar fagnandi. Frumsýningarkvöldið var engin undantekning og grétu áhorfendur bókstaflega af hlátri. Þeim félögum var gríðarlega vel tekið að lokinni sýningu og klappað mikið og lengi lof í lófa.
Fyrsta gagnrýni um sýninguna birtist í dag. Það var Silja Aðalsteinsdóttir, gagnrýnandi Tímarits Máls og menningar sem reið á vaðið. Hún sagði m.a.: "Það var mikið grín, og milli þess sem maður tók andköf af hlátri dáðist maður innilega að því hvað þeir eru fimir þessir strákar, og hvað þeir eru ótrúlega öruggir á sínu, skipta um ham örar en auga á festi aftur og aftur og aftur. Þvílík snilld og þvílík skemmtun."
Harry og Heimir - með öðrum morðum er spennandi ærslaverk um einkaspæjarana röggsömu, Harry Rögnvalds og Heimi Schnitzel. Flestir kannast við útvarpsþættina um þá félaga Harry og Heimi sem voru fyrst á dagskrá Bylgjunnar árið 1988 og nutu fádæma vinsælda. Verkið sem frumsýnt var í kvöld spratt úr heimi útvarpsleikhússins, þar sem hljóðeffektar og dramatísk tónlist hljómaði undir leiknum senum í melodramatískum stíl. Verkið er því mikið sjónarspil ljóss og hljóðs sem rammar inn sprenghlægilegt verk þeirra félaga.
