Fréttir

Borgarleikhúsið slær eigið met í kortasölu

Yfir 6.000 áskriftarkort seld á þremur vikum - stefnir í 18-földun

16.9.2009

Á síðasta ári seldi Borgarleikhúsið fleiri áskriftarkort í leikhúsið en áður hafði verið gert í leikhús hérlendis. Þá ellefufaldaðist kortasala milli ára og kortagestir urðu rúmlega 5.500 talsins. Fyrra met var 3.500 kort sem LR seldi snemma á tíunda áratug síðustu aldar, því var um stórt stökk að ræða í fyrra.
Borgarleikhúsið heldur sínu striki og bauð nú í haust upp á samskonar kort og í fyrra – og á sama verði og þá. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa því aftur er alger sprenging í sölu áskriftarkorta og hefur Borgarleikhúsið slegið eigið met.

Nú, réttum þremur vikum eftir að kortasala hófst, hefur Borgarleikhúsið þegar selt fleiri kort en á öllu átta vikna sölutímabilinu í fyrra. Það er því ljóst nú að metið sem Borgarleikhúsið setti í fyrra í kortasölu, hefur verið slegið. Allt stefnir í að kortagestir Borgarleikhússins verði nálægt 10.000 talsins þegar sölu lýkur í október. Þá mun kortasala að líkindum hafa 18-faldast á rúmu ári.

Samhliða nýrri sókn í almennum áskriftarkortum í fyrra, þá kynnti Borgarleikhúsið sérstök kort fyrir námsmenn og alla sem eru yngri en 25 ára. Kortinu var afar vel tekið og stór hópur ungs fólks varð fastagestur í leikhúsið en sú var ekki raunin áður en sérstök námsmannakort voru kynnt.   

Að auki fer sala á stakar sýningar vel af stað og uppselt er á allar sýningar leikhússins fram í október. Söngvaseiður og Harry og Heimir njóta gríðarlegra vinsælda en einnig er uppselt á þónokkrar sýningar á Djúpinu og Heima er best.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica