Heima er best frumsýnt á Nýja sviðinu í kvöld
Óhugnanlegt verk um innilokun, kúgun og endursköpun á raunveruleikanum.
Á Nýja sviðinu var mörkuð sú stefna á síðasta ári að bjóða upp á ný leikverk sem spyrja áleitinna spurninga og eru ögrandi um leið og þau eru í náinni samræðu við samtímann. Á síðast ári var t.d. sýnt á Nýja sviðinu verkin Rústað, Ökutímar og Þú ert hér og í ár byrjum við á Heima er best. Verkið er átaka mikið verk um einangrun, innilokun og þrengsli og hvernig mannskepnan vinnur úr innilokuninni og áföllum sem á hana dynja í vistinni. Sjálfur segir höfundurinn að mannskepnan sé aðeins einu áfalli frá því að verða skrímsli. Þröstur Leó fer með hlutverk föðurins sem hefur í nær tvo áratugi læst syni sína tvo inni í lítilli íbúð í London þar sem hann stjórnar þeim með harðri hendi í örvæntingafullri tilraun til að halda fjölskyldunni saman. Synirnir, Blake og Sean sem þeir Guðjón Davíð og Jörundur leika hafa lært að lifa með harðræðinu en eiga sér samt draum um að komast út.
Það má því lýsa verkinu á eftirfarandi leið: Tveir bræður leika sama leikritið aftur og aftur undir ógnarstjórn föður síns. Innan tveggja tíma hafa þrír menn drukkið sex dósir af bjór, borðað slatta af kexi með smurosti og sporðrennt grilluðum kjúklingi með undarlegri blárri sósu. Innan tveggja klukkutíma munu fimm manneskjur týna lífi. Sumsé. Allt eins og það á að vera. Í íbúð feðganna er raunveruleikinn endurskapaður og settur á svið með aðferðum farsans. Grófur ofleikur, eldsnögg búningaskipti og ógnvænlegur hraði.
Jón Páll Eyjólfsson leikstjóri er ekki þekktur fyrir að hlífa áhorfandanum og gerir hann það ekki heldur hér. Meðal fyrri uppsetninga hans er Maríubjallan (LA), Herra Kolbert (LA), Vestrið eina (Borgarleikhúsið) og Þú ert hér (Borgarleikhúsið). Í vetur mun hann vinna verk sem er framhald af Þú ert hér ásamt félögum sínum, Jóni Atla og Halli Ingólfssyni. Það mun nefnast Góðir Íslendingar.
Höfundurinn Enda Walsh (1967) er fæddur í Dublin á Írlandi og hafa verk hans verið sviðsett víða um heim. Tvö leikrita hans hafa verið sýnd hérlendis, Disco Pigs og Misterman. Walsh er höfundur hinnar margverðlaunuðu kvikmyndar Hunger frá 2008. Heima er best (Walworth Farce) hlaut afbragðs viðtökur þegar það var frumsýnt í National Theatre í London í fyrra.
Sýningartími er snarpur sem er nýtt fyrirkomulag sem kynnt var á síðasa leikári og þýðir að sýning er sýnd oft í viku í fyrirfram ákveðin tíma sem er ekki lengri en 4 vikur í senn.
Höfundur: Enda Walsh - Þýðandi: Heiðar Sumarliðason - Leikstjórn: Jón Páll Eyjólfsson - Leikmynd og búningar: Ilmur Stefánsdóttir – Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson -Tónlist: Hallur Ingólfsson
Leikarar: Þröstur Leó Gunnarsson, Jörundur Ragnarsson, Guðjón Davíð Karlsson og Dóra Jóhannsdóttir
