Gunni Þórðar órafmögnuð sögustund í Borgarleikhúsinu
Stórviðburður á Stóra sviðinu - tónleikar Gunna Þórðar 2. okt
Einn ástsælasti lagahöfundur landsins síðustu fjóra áratugi stígur á stokk í Borgarleikhúsinu ásamt úrsvalshljómsveit og flytur öll sín þekktustu lög.
Eftir Gunnar liggur 650 laga safn og eru mörg þeirra fyrir löngu síðan orðin hluti af þjóðarsálinni. Stór hluti þeirra var upphaflega fluttur af fremstu söngvurum landsins en hérna gefst einstakt tækifæri til að sjá höfundinn sjálfan flytja lögin. Áhorfendur mega búast við því að heyra nýjar útgáfur af mörgum lögunum og sögurnar á bak við tilurð þeirra.
Hér er sem sagt á ferðinni órafmagnaðir ferilstónleikar með einum fremsta listamanni þjóðarinnar í einum besta tónleikasal landsins - tónlistarviðburður sem enginn má missa af.
Sérstakir gestir eru: hljómsveitin Buff og Svavar Knútur
Hljómsveitina kvöldsins skipa:
Jóhann Ásmundsson: Bassi
Kjartan Hákonarson: Flugelhorn /Trompet
Þórir Úlfarsson: Píanó / orgel
"Persónulegur hlýr og notalegur flutningur Gunnars á þessum frábæru lögum fleytir þessu tónleikum sannarlega í hóp þeirra bestu sem ég hef séð og heyrt óralengi."
- Björn Jónsson, um tónleika á Græna hattinum þann 30. apríl
"Kallinn var bara með gítar að vopni og söng lögin einn og óstuddur.
Og útkoman ber væði vott um hve góð þessi lög eru og hvað Gunni er frábær talent. Hann söng lögin prýðilega og gítarspilið var auðvitað í heimsklassa."
- Siggi Óla, um tónleika í Egilsbúið þann 22. maí
Miðaverð 2.900 kr - Kaupa miða
Tónleikar hefjast kl. 19.30
