Orkuveita Reykjavíkur og Borgarleikhúsið undirrita samstarfssamning
Orkuveitan og Borgarleikhúsið undirrita áframhaldandi samstarf fyrirtækjanna
Í síðustu viku undirrituðu Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur og Inga Jóna Þórðardóttir, formaður stjórnar LR samstarfssamning milli Orkuveitunnar og LR fyrir yfirstandandi leikár. Samningurinn er gerður í kjölfar farsæls samstarfs fyrirtækjanna undanfarin ár og er mjög rausnarlegur að hálfu OR. Samvinna af þessu tagi við fyrirtækin í landinu er gríðarlega mikilvæg fyrir Borgarleikhúsið, ekki síst á þessum tímum. Orkuveitan verður einn af máttarstólpum Borgarleikhússins ásamt því að verða aðalstyrktaraðili verkefnisins „Ungt fólk í Borgarleikhúsið“ sem veitir ungmennum undir 25 ára aldri og námsmönnum 50% niðurgreiðslu á áskriftarkortun Borgarleikhússins. Námsmenn greiða því aðeins 4.450 fyrir kortið í stað kr. 8.900. Áskriftarkortið er að öllu leyti eins og almennt áskriftarkort og gildir á fjórar leiksýningar að eigin vali á leikárinu.
