Fréttir

Nýr trúður fundinn í Bláa gullið

Trúðurinn Hekla (Ilmur Kristjánsdóttir) stekkur inn.

13.10.2009

BlaaGullid 450x236Þær gleðifréttir bárust úr herbúðum Bláa gullsins að nýr trúður stigi á svið næstu helgi í stað trúðsins Guðfinnu sem leikkonan María Pálsdóttir leikur í sýningunni, en María sleit hásin á frumsýningu leikritsins á laugardaginn var. María lét slysið ekki stöðva sig á frumsýningu og lauk sýningunni með sóma. Nýji trúðurinn heitir Hekla og er hann leikinn af Ilmi Kristjánsdóttur. En trúðurinn Hekla á sér langa sögu hjá Ilmi og því enginn nýgræðingur í trúðslátum. En í verkinu fara þrír trúðar með áhorfendur í ævintýraferð um undraheima vatnsins og er verkið einlæg, fræðandi og skemmtileg frásögn um vatnið og hringrás þess í sögunni.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica