Fréttir

Þá kom haustið nýtt lag frá KK fyrir leikritið Fjölskyldan

Glænýtt lag úr smiðju KK samið fyrir leikritið Fjölskyldan

16.10.2009

 

Tónlistarmaðurinn vinsæli KK semur og flytur tónlistina í leikritinu Fjölskyldan sem frumsýnt verður 30. október. Lagið heitir Þá kom haustið og er fallegt lag um ástina sem leynist í verkinu um leið og titilinn vísar óbeint í efni leikverksins þar sem við erum stödd hjá Westonfjölskyldunni og fylgjumst með haustinu í lífi ættmóðurinnar. KK (Kristján Kristjánsson) ásamt hljómsveit tekur þátt í sýningunni með tónlistarflutningi og munu þeir flytja frumsamda tónlist KK og heita slagara frá Bandaríkjunum að sinni alkunnu snilld. KK er ekki óvanur Stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu því hann tók þátt í uppfærslu leikhússins á Þrúgur Reiðinnar leikárið 1991/92 og slá lag hans Vegbúinn þá rækilega í gegn. 

HLUSTA Á LAGIÐ



Þetta vefsvæði byggir á Eplica