Fréttir

Nýr heiðurfélagi krýndur á aðalfundi LR

Guðrún Ásmundsdóttir nýr heiðurfélagi LR á aðalfundi félagsins í gærkveld

27.10.2009

 

Guðrún Ásmundsdóttir nýr heiðurfélagi LRÍ gærkveldi var haldinn aðalfundur Leikfélags Reykjavíkur. Í tölu formanns LR, Ingu Jónu Þórðardóttur, kom fram að síðasta leikár hafi verið mikið gæfuár fyrir LR og Borgarleikhúsið. Aðsókn hefur aldrei verið meiri í sögu íslensks leikhúss en rúmlega 207 þúsund gestir sóttu Borgarleikhúsið og kortasala ellefufaldaðist og hefur aldrei verið meiri. Sýningar voru fjölbreyttar og vandaðar auk þess sem reksturinn gekk vel, var hallalaus þrátt fyrir óvæntan niðurskurð á opinberum stuðningi vegna kreppunnar. Nýtt leikár þykir fara einstaklega vel af stað, aðsókn eykst og kortasala líka.

Á aðalfundi LR kom fram tillaga frá stjórn félagsins um að taka inn nýjan heiðursfélaga, Guðrúnu Ásmundsdóttur, en slíkt hefur ekki gerst oft í langri sögu LR. Tillagan var lögð til atkvæðagreiðslu á fundinum og hlaut hún einróma samþykki fundarmanna. Var Guðrún krýnd nýr heiðurfélagi á fundinum í gærkveldi og bætist hún í einvala lið heiðurfélaga Leikfélags Reykjavíkur sem eru; Vigdís Finnbogadóttir, Sveinn Einarsson, Baldvin Tryggvason, Jón Sigurbjörnsson, Steindór Hjörleifsson, Steinþór Sigurðsson. 

Guðrún var leikkona leikhússins um áratugaskeið auk þess sem hún skrifaði og leikstýrði fyrir félagið. Þá var hún einn helsti baráttumaðurinn fyrir byggingu Borgarleikhússins en því er einmitt fagnað um þessar mundir að 20 ár eru frá því að LR flutti í Borgarleikhúsið.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica