Fréttir

Fjölskyldan - ágúst í Osagesýslu frumsýnt í kvöld

Stórbrotin fjölskyldusaga – sannkölluð leikhúsveisla

30.10.2009


Fjölskyldan Nína Dögg og Guðrún

Fjölskyldan – ágúst í Osage-sýslu eftir Tracy Letts verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins  í kvöld. Hér er á ferðinni stórbrotin fjölskyldusaga sem sópað hefur til sín verðlaunum. Leikritið er fjölskyldusaga Weston fjölskyldunnar sem kemur saman þegar ættfaðirinn, Bewerly Weston, hverfur. Verkið er um  gleði og sorgir fjölskyldunnar og hvernig óvænt áföll geta ýtt löngu gleymdum atburðum aftur upp á yfirboðið. Hilmir Snær Guðnason leikstýrir verkinu og er þetta hans fyrsta verkefni eftir að hafa skrifað undir fastan samning við Borgarleikhúsið síðast liðið sumar. Þrettán leikarar taka þátt í verkinu, úrvals lið leikara Borgarleikhússins. Tónlistarmaðurinn KK fléttar síðan tónlistartöfra sína inn í verkið og verður lifandi tónlist á sviðinu sem rammar inn verkið. Þá kom haustið, nýtt lag frá KK sem heyrist nú á öldum ljósvakans, var sérstaklega samið fyrir verkið.  Fyrir sýningu geta gestir pantað sér girnilegan lystauka sem bíður þeirra í fyrra hléi. Sýningin er þrír þættir og verða tvö hlé, eftir 1. og 2. þátt.

Tracy Letts (1965) er eitt fremsta leikskáld Bandaríkjanna nú um stundir. Hann starfar við hið víðfræga Steppenwolf-leikhús í Chicago sem leikskáld, leikstjóri og leikari. Fyrsta leikrit hans, Killer Joe, var sýnt hér í Borgarleikhúsinu. Fjölskyldan – ágúst í Osagesýslu hlaut þrenn eftirsóttustu leiklistarviðurkenningar Bandaríkjamanna: Drama Desk, Pulitzer og loks Tony-verðlaunin sem besta leikrit ársins 2008.

Höfundur: Tracy Letts. Þýðandi: Sigurður Hróarsson. Leikstjórn: Hilmir Snær Guðnason. Búningar: Margrét Einarsdóttir. Leikmynd: Börkur Jónsson. Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson. Tónlist: KK Leikgervi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir. Hljóð: Jakob Tryggvason

Leikarar: Sigrún Edda Björnsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Pétur Einarsson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Nína Dögg Filippusdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Theodór Júlíusson, Hallgrímur Ólafsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Ellert A. Ingimundarson og Rúnar Freyr Gíslason

Hljómsveit: KK, Ásgeir Óskarsson, Stefán Magnússon og Þorleifur J. Guðjónsson




Þetta vefsvæði byggir á Eplica