Fjölskyldan hlaut góðar móttökur fyrstu sýningarhelgina
Frumsýningargestir stóðu upp og hylltu fríðan hóp leikara að leikslokum
Mikið var um dýrðir í Borgarleikhúsinu á föstudagskvöldið þegar Fjölskyldan – ágúst í Osage sýslu eftir Tracy Letts var frumsýnt. Verkið hefur hlotið gríðarlega góðar viðtökur um allan heim og kunna Íslendingar einnig að meta verk Letts. Salurinn hreyfst með frá fyrstu stundu og var ekki að sjá á gestum að lengdin á verkinu hefði einhver áhrif á þá. Í lok frumsýningar risu gestur úr sætum af hrifningu og hylltu leikarana og aðra aðstandendur sýningarinnar. Eftir sýningu fögnuðu leikhúsgestir, aðstandendur sýningarinnar og starfsfólk Borgarleikhússins því að 20 ár er síðan Leikfélag Reykjavíkur flutti starfsemi sína í Kringluna og Borgarleikhúsið tók til starfa.
