Fréttir

Gjafakortin rjúka út

10.11.2009

Gjafakort Borgarleikhússins eru tilvalin gjöf fyrir þá sem þig langar að gleðja. Þau eru opin,  gilda á allar sýningar og renna aldrei út. Sá sem gjöfina hlýtur getur því valið sýningu úr fjölbreyttu úrvali leiksýninga sem Borgarleikhúsið býður upp á. Í vetur eru yfir tuttugu leiksýningar á boðstólum af öllu tagi.

Til viðbótar við almenn gjafakort, bjóðum við nú í ár tvo sérstaka tilboðspakka:

  • Söngvaseiðs-jólagjafapakki: Miði fyrir tvo á söngleikinn vinsæla og geisladiskur með allri tónlistinni. Verð 7.900 kr
  • Gauragangs-jólagjafapakki: Miði fyrir tvo á söngleikinn sem frumsýndur verður í mars og bókin vinsæla. Verð: 6.500 kr

 

Starfsfólk okkar í miðasölu veitir allar nánari upplýsingar með ánægju. Miðasölusíminn er 568 8000.

Við gerum sérstök tilboð í magninnkaup en Gjafakort Borgarleikhússins eru vinsæl jólagjöf fyrirtækja.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica