Fréttir

Rautt brennur fyrir frumsýnt á Nýja sviðinu 19. nóvember

Fyrsta verk ungs leikskálds, Heiðars Sumarliðasonar á atvinnusviði

16.11.2009

Rautt brennur fyrirRautt brennur fyrir er eftir Heiðar Sumarliðason, ungt leikskáld sem útskrifaðist frá nýrri braut Listaháskóla Íslands, Fræði og framkvæmd á síðasta ári. Leikritið er fyrsta verk höfundar sem sést á atvinnusviði. Verkið er ögrandi og fellur því vel að áherslum á Nýja sviðinu þar sem gerðar eru tilraunir með leikhúsformið og varpað fram áleitnum spurningum. Rautt brennur fyrir fjallar um flókin sambönd fólks í íslenskum samtíma. Titill verksins rautt brennur fyrir er gamalt máltæki sem merkir að eitthvað gott sé í vændum.

Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttur. Frumsýning er fimmtudaginn 19. nóvember kl 20:00



Þetta vefsvæði byggir á Eplica