Fréttir

9000 miðar seldir á Gauragang

Forsala fer vel af stað

26.2.2010

Forsala á Gauragang fór vel af stað í gær. Yfir 9000 miðar eru seldir á þetta sívinsæla leikrit Ólafs Hauks Símonarsonar.
Mikið var að gera í miðasölunni í gær og byrjar dagurinn í dag ekki síður vel.
Gauragangur er eitt vinsælasta leikrit Ólafs Hauks og samnefnd bók sem verkið er byggt á er lesin í mörgum skólum landsins. Það eru tvær kynslóðir af íslenskum ungmennum sem hafa lesið bókina en ekki sé leikritið á sviði og því var löngu orðið tímabært að setja verkið upp aftur og leyfa fólki að skemmta sér með Ormi og njóta frábærar tónlistar Nýdönsk sem er í leikritinu. Frumsýning er 19. mars.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica