Beint í leiðarkerfi vefsins.
Samningar hafa náðst um leikferð Borgarleikhússins og Vesturports með leikritið Faust í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar til hins virta leikhúss Young Vic í London komandi haust.
Lesa meiraLestri starfsfólks Borgarleikhússins á skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis lauk nú kl. 12.30 eftir 146 klukkustunda samfelldan lestur.
Lesa meiraLestur skýrslunnar stendur enn yfir í Borgarleikhúsinu. Áætlað er að lestrinum ljúki í fyrramálið, sunnudaginn 18. apríl, sex sólarhringum eftir að starfsfólk leikhússins hóf lesturinn. Leikhúsið er sem fyrr opið dag og nótt.
Lesa meira17.4.2010
Nú eru liðnir fimm sólarhringar síðan leikarar Borgarleikhússins lásu fyrstu setningarnar í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Áætlað er að um einn sólarhringur sé eftir áður en síðasta orðið verður lesið.
Stöðugur straumur fólks hefur verið í leikhúsið dag og nótt. Tugþúsundur hafa fylgst með útsendingunni hér á heimasíðu leikhússins.
Nú lesa þær Jóhanna Vigdís og Hanna María.
Lesturinn fer fram á Nýja sviði Borgarleikhússins. Milli kl. 17 og 24 í kvöld færist lesturinn yfir í forsal meðan tvær sýningar verða á Dúfunum á Nýja sviði. Að þeim loknum færist lesturinn aftur á sinn stað og lýkur þar í fyrramálið.
Lesa meira
Hátíðardagskrá í Háskólabíói
15. apríl kl. 16:30–18:00
Dagskráin er öllum opin. Húsið verður opnað kl. 15:30 og eru gestir hvattir til að mæta stundvíslega þar sem sent verður beint út í sjónvarpi og útvarpi.
Lesa meiraLestur á Skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis gengur vel og eru leikarar komnir í mitt fjórða bindi. Nú um sex leytið var lestaraðstaðan flutt fram í forsal leikhússins svo hægt væri að undirbúa leiksýningu kvöldsins á Nýja sviðinu. Í forsalnum er góð aðstaða til að hlusta á lesturinn.
Lesa meiraNú er kominn sólarhringur síðan lestur hófst á skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis hér í Borgarleikhúsinu. Viðtökur hafa verið með eindæmum góðar.
Lesa meiraeftir David Gieslemann í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur verður frumsýnt á Nýja sviðinu í kvöld. Verkið var verðlaunað sem besta nýja gamanleikritið í Þýskalandi á síðasta ári. Dúfurnar er kolsvartur gamanleikur um mannshvarf sem er kryddaður með hráum gítarleik Vilhelms Anton Jónssonar.
Lesa meiraStarfsfólk Borgarleikhússins mun lesa rannsóknarskýrsluna í heild sinni, en hún er um 2000 blaðsíður að lengd, og bjóða landsmönnum að hlýða á upplesturinn. Lesturinn verður einnig aðgengilegur í beinni útsendingu hér á heimasíðu leikhússins.
Lesa meira