Fréttir

Æfingar hafnar á stórvirkinu Enron

Leikarahópurinn sökkvir sér niður í rannsóknarvinnu

27.5.2010

Lucy Prebble höfundur EnronÆfingar eru hafnar á leikritinu Enron eftir Lucy Prebble í Borgarleikhúsinu. Leikritið sló í gegn á West End síðasta vetur og því mikill fengur að fá það strax hingað heim fyrir spennta leikhúsgesti.
Stefán Jónsson leikstýrir verkinu hér í Borgarleikhúsinu og hefur hann ekki setið auðum höndum í undirbúning sínum fyrir verkefnið. Hann hefur fengið sérfræðinga á hinum ýmsu sviðum mannsálarinnar og eins á sviðum viðskiptalífsins til að kynna fyrir hópum hvað gerist þegar stórfyrirtæki líkt og Enron fellur. Sérfræðingar á sviði geðlækninga, siðferði og fjármála hafa komið og rætt við hópinn um siðblindu, siðferði og frumskóginn sem fjármál Enron voru komin í þegar fyrirtækið féll eins og frægt er orðið.

Hvað fer um huga forstjóra sem veit að leiknum er lokið? Þessi spurning og fleiri er hópurinn að glíma við núna í upphafi æfingarferilsins.

Margt í verkinu segir hópurinn minna á atburðina sem gerðust hér 2008 þegar íslenski fjármálaheimurinn hrundi svo það verður spennandi að sjá Enron nú í haust. Verkið er sagt útskýra fjármálaheiminn á aðgengilegan og einfaldan hátt og hefur höfundurinn Lucy Prebble verið valin ein af 25 helstu útskýrendum fjármálahrunsins í heiminum af tímaritinu Fortune. Enron verður frumsýnt í september.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica