Beint í leiðarkerfi vefsins.
Útvarpsþátturinn Orð skulu standa hefur verið einn alvinsælasti útvarpsþáttur þjóðarinnar síðustu átta ár en í honum er íslensk tunga í forgrunni. Nú í síðustu viku var tilkynnt að þátturinn yrði tekinn af dagskrá Ríkisútvarpsins sem lið í niðurskurði stofnunarinnar.
Nýtt rótsterkt og ilmandi leikár Borgarleikhússins verður afhjúpað þann 20. ágúst næstkomandi. Leikhúsunnendur geta byrjað að hlakka til komandi vetrar, því í boði verða 20 sýningar af öllu tagi, hver annarri áhugaverðari. Við lofum ykkur leikári sem verður heitt og kalt, súrt og sætt, áleitið og leikandi en umfram allt kraftmikið og skemmtilegt.