Fréttir

Áskriftarkortasala eykst enn umtalsvert í Borgarleikhúsinu

Áskriftarkort í Borgarleikhúsið gildir á fjórar sýningar að eigin vali.

27.8.2010


 
Fjöldi áskriftarkortagesta í Borgarleikhúsinu tuttugufaldaðist á árunum 2008 og 2009. Á síðasta leikári voru kortagestir Borgarleikhússins 10.000 talsins en það er það langmesta sem hefur verið í sögu íslensks leikhúss. Nýtt leikár var kynnt í síðustu viku í Borgarleikhúsinu og hófst kortasala föstudaginn 20. ágúst, fyrir réttri viku síðan. Skemmst er frá því að segja að kortasala á þessari einu viku sem liðin er, er ríflega tvöföld sú sem hún var á sama tíma í fyrra. Það bendir því allt til að Borgarleikhúsið slái rækilega eigið met í fjölda kortagesta þetta leikárið.  Gestir Borgarleikhússins á síðasta ári voru 219þúsund talsins en það er einnig met í sögu íslensks leikhúss.
 
Guðrún Stefánsdóttir miðasölustjóri segir að áhuginn á áskriftarkortum sé með eindæmum, „það er búinn að vera stöðugur straumur hingað í leikhúsið og við höfum vart undan við að selja kortin. Fjölgunin var svo mikil í fyrra að við þorðum engan veginn að vona að fjöldi kortagesta myndi aukast enn. Þess vegna erum við auðvitað algerlega í skýjunum með þessi frábæru viðbrögð. Þetta er bara í einu orði sagt algert ævintýri“
 
Áskriftarkort í Borgarleikhúsið gildir á fjórar sýningar að eigin vali.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica