Beint í leiðarkerfi vefsins.
Leikverkið um ris og fall stórfyrirtækisins ENRON var frumsýnt 23. september s.l. Lucy Prebble, höfundur verksins, var viðstödd frumsýninguna og lýsti yfir ánægju með útkomuna á sviði Borgarleikhússins.
Barnasýning ársins 2010, Horn á Höfði, verður sýnd í Borgarleikhúsinu frá og með 18. september.
Björn vaknar einn morguninn með horn á höfðinu. Hann veit ekki af hverju hann er með horn á höfðinu en veit að hann langar ekki til að líta út eins og geit. Því fær hann Jórunni vinkonu sína til að hjálpa sér við að rannsaka málið. Í leit sinni að sannleikanum upphefst atburðarás á mörkum ævintýris og veruleika.
Lucy Prebble er aðeins 29 ára gömul en hefur öðlast heimsfrægð fyrir leikrit sitt Enron sem frumsýnt var í London í september í fyrra. Leikritið sló þegar í stað rækilega í gegn og hlaut mikið lof gagnrýnenda. Flest dagblöð Bretlands gáfu sýningunni fimm stjörnur og í kjölfarið vann leikritið fjölda verðlauna þar í landi.
Lesa meiraTroðfullt var út úr dyrum á opnu húsi og ánægjan skein úr hverju andliti, ungu sem öldnu.
Vel yfir 10.000 manns heimsóttu leikhúsið sitt í gær en viðamikil dagskrá var í boði. Skoðunarferðir leiddu gesti um króka og kima leikhússins.