ENRON fær góðar viðtökur
ENRON er áhrifamikið verk og sýningin er einstaklega kraftmikil og skemmtileg
Leikverkið um ris og fall stórfyrirtækisins ENRON var frumsýnt 23. september s.l. Lucy Prebble, höfundur verksins, var viðstödd frumsýninguna og lýsti yfir ánægju með útkomuna á sviði Borgarleikhússins.
Enron hefur jafnframt fengið góðar viðtökur gagnrýnenda
★★★★ E.B. Fréttablaðið
★★★★1/2 I.Þ. Morgunblaðið
„Leikritið Enron er áhrifamikið verk og sýningin er einstaklega kraftmikil og skemmtileg." I.Þ. Morgunblaðið
„Enron er mikið sjónarspil." E.B. Fréttablaðið
