Beint í leiðarkerfi vefsins.
Sá fáheyrði, ef ekki einstæði, viðburður átti sér stað í gær að Borgarleikhúsið sýndi átta troðfullar sýningar á einum degi og leikhúsið tók á móti nær 3000 gestum þennan dag. Uppselt var á allar umræddar sýningar og komust færri að en vildu.
Lesa meira
Leikritið hefur farið sigurför um heiminn og sló rækilega í gegn á sviði Borgarleikhússins
Lesa meira
Það var gaman hjá Faust hópnum í London um helgina en Young Vic leikhúsið fagnaði nú á dögunum 40 ára afmæli.
Velunnurum leikhússins var boðið í mikla Gala - veislu í tilefni afmælisins og búið var að undirbúa mikla dagskrá sem okkar fólk tók þátt í.
Fólkið í kjallaranum var frumsýnt á laugardag. Áhorfendur fögnuðu sýningu og listamönnum vel og lengi. Fyrstu dómar hafa nú birst en þar er sýningin lofuð í hástert.
Lesa meira
Fólkið í kjallaranum, verðlaunasaga Auðar Jónsdóttur verður frumsýnd á Nýja sviði Borgarleikhússins 9. október næstkomandi. Þetta er kraftmikið , ljúfsárt verk sem skoðar af dirfsku ólíka heima '68-kynslóðarinnar og góðæriskynslóðarinnar.
Lesa meira
Þrír menn eru staddir í rústum. Þeir uppgötva að veröld þeirra er liðin undir lok og að þeir verða að læra að fóta sig að nýju. Úr rústunum í kringum sig raða þeir saman bútum af fyrra lífi og reyna að átta sig á því hvar þeir eru staddir, hvað hafi gerst og hvert skuli stefna.
Lesa meira
Í kvöld, 1. október verður uppsetning Borgarleikhússins og Vesturports á FAUST frumsýnd í hinu virta Young Vic leikhúsi í London. Undanfarnar tvær vikur hafa 25 íslenskir leikarar og tæknimenn verið að störfum í leikhúsinu ásamt erlendum starfsbræðrum sínum við aðlögun verksins að nýju rými. Sýningin er nú flutt á ensku og því þurftu leikararnir að læra hlutverk sín að nýju á nýrri tungu.
Lesa meira