Fréttir

Átta sýningar  Borgarleikhúss á einum degi

Uppselt á allar sýningarnar – og færri komust að en vildu

31.10.2010

Sá fáheyrði, ef ekki einstæði, viðburður átti sér stað í gær að Borgarleikhúsið sýndi átta troðfullar sýningar á einum degi og leikhúsið tók á móti nær 3000 gestum þennan dag. Uppselt var á allar umræddar sýningar og komust færri að en vildu. Leiksýningarnar Fólkið í kjallaranum og Harry og Heimir voru hvor um sig sýndar tvisvar í  gærkvöldi  en auk þeirra var Enron á Stóra sviðinu og barnasýningin Horn á höfði á því litla. Til viðbótar bætist að Faust, í uppsetningu Borgarleikhússins í samstarfi við Vesturport, var sýnd tvisvar fyrir troðfullu húsi í hinu virta Young Vic leikhúsi í London. Þetta voru síðustu sýningarnar á Faust í London, í bili a.m.k., en uppselt hefur verið á allar 35 sýningar verksins síðustu 5 vikurnar. Í gær voru um 100 manns í biðröð í London eftir ósóttum pöntunum. Aðsókn í Borgarleikhúsið hefur verið með afbrigðum góð í allt haust og kortasala eykst enn frá metárinu í fyrra. Sem kunnugt er hefur aðsókn aldrei verið meiri í íslenskt leikhús en að Borgarleikhúsinu í fyrra.
 
Mikil sala er á sýningar framundan og það styttist í að uppselt verði fram að jólum. Auk fyrrgreindra sýninga sem sýndar eru við miklar vinsældir, bætast við tvær verðlaunasýningar frá síðasta leikári, Fjölskyldan og Jesú litli en hún hlaut Grímuverðlaunin sem besta sýning ársins. Mikill spenningur er fyrir þessum sýningum og þegar er orðið uppselt á um 20 sýningar af þeim.
 
Harry og Heimir kveðja í kvöld eftir 125 uppseldar sýningar í Reykjavík en leikferð til Akureyrar hefst í lok vikunnar. Sýnt verður í Samkomuhúsinu hjá Leikfélagi Akureyrar en þegar er uppselt á 10 sýningar norðan heiða.
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica