Fréttir
Hjalti Rögnvalds

Ljúflingur og drullukaka

Tvöfalt ljóðakvöld á Nýja sviði Borgarleikhússins  fimmtudaginn 2. desember

30.11.2010

Borgarleikhúsið efnir til ljóðaupplestrar fimmtudaginn 2. desember kl 20:00. Þá mun Hjalti Rögnvaldsson, leikari, lesa upp ljóðaþýðingar  Sölva Björns Sigurðssonar á ljóðum John Keats  (1795-1821) og Arthurs Rimbaud (1854-1891). Sölvi hefur verið afar mikilvirkur þýðandi þótt ungur sé að árum, aðeins liðlega þrítugur. Hann þýddi nú síðast leikrit Shakespeares Ofviðrið sem Borgarleikhúsið frumsýnir um jólin.
 
Hjalti mun fyrst lesa upp ljóð eftir John Keats sem var eitt af höfuðskáldum Englendinga á 19. Öld. Hann átti erfiða ævi og furðu skamma. Hann lést úr berklum einungis 25 ára að aldri en náði ótrúlegum sálarþroska á stuttri ævi  að jaðrar við kraftaverk. Ljóð hans bera þessa glögg merki. Þótt samtímafólk hans hafi ekki kunnað að meta hann er hann nú nefndur í sömu andrá og Shakespeare og Byron.
 
Frakkinn Arthur Rimbaud er einnig höfuðskáld en af öðru sauðahúsi en Keats. Þótt hann hafi að mestu hætt að yrkja ljóð nítján ára að aldri vísaði hann fjölda listamanna veginn til nýrra tíma og hafði áhrif sem enn gætir langt út fyrir landamæri ljóðlistarinnar. Ljóðabálkurinn sem Hjalti les, Árstíð í helvíti, hóf nafn hans á loft sem eins af framvörðum evrópska módernismans. Honum tókst að umbylta ljóðlistinni og hafa áhrif á næstum allt sem gerðist í ljóðagerð tuttugustu aldar og er talinn af sumum mesta skáld uppreisnarandans, - fyrsta drullukakan í tertuboði heimsbókmenntanna.
 
Hjalti Rögnvaldsson útskrifaðist frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins 1972. Hann hefur leikið fjölmörg hlutverk bæði hjá LR og Þjóðleikhúsinu, auk þess sem hann hefur starfað sem leikari og upplesari á Norðurlöndunum. Einnig hefur hann lagt stund á þýðingar á norrænum fagurbókmenntum og leikritum. Meðal hlutverka Hjalta hjá Þjóðleikhúsinu má nefna Ólaf Kárason Ljósvíking í Húsi skáldsins, en fyrir það hlutverk hlaut hann Menningarverðlaun DV, Orestes í Óresteiu, Alfreð í Sögum úr Vínarskógi, Atla í Grasmaðki, Jón Marteinsson í Íslandsklukkunni, Semjon Semjonovítsj Medvedénko í Mávinum, Máninn í Blóðbrullaupi, Magnús í Sönnum sögum af sálarlífi systra  og Gabríel í Laufunum í Toscana. Hjalti lék í Heimkomunni og Húsverðinum hjá P-leikhúsinu, einþáttungum Brechts Gyðingakonunni, Spæjaranum og Krítarkrossinum á aldarafmæli höfundarins í Skemmtihúsinu, í Abigail heldur partí hjá Leikfélagi Reykjavíkur og í Shopping & Fucking á vegum EGG-leikhússins í Nýlistasafninu. Hann hefur starfað töluvert við útvarp og leikið hátt í hundrað hlutverk hjá Útvarpsleikhúsinu. Hjalti hefur leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta, meðal þeirra má nefna kvikmyndirnar Kalda slóð og Nóa albínóa. Sýningar Hjalta á leikárinu: Enron og Gauragangur



Þetta vefsvæði byggir á Eplica