Fréttir

Ofviðrið Frumsýnt í kvöld

Hvergi er til sparað í þessari uppfærslu sem státar af ástsælustu leikurum þjóðarinnar

29.12.2010

Ofviðrið, er í leikstjórn eins virtasta leikstjóri heims, Oskaras Koršunovas og verður frumsýnt á Stóra sviðinu í kvöld. Uppselt er á fyrstu 14 sýningarnar. Verkið er síðasta leikrit Shakespeares, dásamlegur gleðileikur uppfullur af húmor, ást og krafti, fjallar um fegurðina í dyggðinni og hina nauðsynlegu fyrirgefningu eftir áföll. Hvergi er til sparað í þessari uppfærslu sem státar af ástsælustu leikurum þjóðarinnar, margverðlaunuðum listrænum stjórnendum og Íslenska Dansflokknum. Koršunovas hefur verið í hópi fremstu leikstjóra heims síðustu ára, sviðsett á fjórða tug leikrita víðsvegar um heim frá árinu 1990 og unnið tugi viðurkenninga fyrir verk sín.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica