Beint í leiðarkerfi vefsins.
Stjórn sjóðsins velur höfund úr hópi umsækjenda sem býðst eins árs samningur við Borgarleikhúsið. Laun sem eru greidd mánaðarlega taka mið af starfslaunum listamanna. Skáld skal þegar hafa sýnt árangur við skáldskap en reynsla af leikritun er ekki skilyrði. Skáldið fær aðstöðu í leikhúsinu, vinnur þar á samningstímanum og verður hluti af starfsliði Borgarleikhússins og mun njóta aðstoðar, leiðsagnar og stuðnings leikhússtjóra og leiklistarráðunauta. Stefnt er að því að velja skáld sem er líklegt til að njóta góðs af aðstöðu sinni hjá leikhúsinu.
Lesa meiraFyrr á þessu ári réð Borgarleikhúsið sex ung leikskáld til að semja stutt verk fyrir leikhúsið. Stefnt er að uppsetningu hluta þeirra á næsta ári. Nú auglýsir leikritunarsjóður Leikfélags Reykjavíkur í þriðja sinn eftir umsóknum um stöðu Leikskálds Borgarleikhússins. Stjórnarformaður Leikritunarsjóðs er frú Vigdís Finnbogadóttir.
Lesa meira