Fréttir

Þú ert hér vekur eftirtekt í Berlín

Þú ert hér boðið á Nordwind listahátíðina í Berlín

5.10.2009

Úr sýningunni Þú ert hérSýningunni Þú ert hér var boðið á listahátíðina Nordwind sem haldin er árlega í Berlín þar sem flaggað er norrænni list af ýmsu tagi. Tvær sýningar verða á verkinu, sunnudag 4. október og mánudag 5. október kl 19:30 í HAU 3,. einu af þremur rýmum Hebbel am Ufer-leikhússins. Sýningu gærkvöldsins var vel tekið af þýsku leikhúsfólk og áhugavert að fylgjast með hvað gerist eftir þessar sýningar. Sýningunni hefur þegar verið boðið til Bretlands og Þýskalands í sumar og fyrirspurnir hafa borist m.a. frá Finnlandi, Belgíu og Austurríki.
Þeir Jón Atli Jónasson, Jón Páll Eyjólfsson og Hallur Ingólfsson hafa undanfarin ár starfað saman undir nafninu Mindgroup og hafa þeir á undanförnum árum gert leiksýningar sem vinna markvisst með samtímann. Hér beina þeir sjónum leikhúsgesta að því hvernig smæsta eining samfélagsins, manneskjan ein og sér, bregst við nýafstöðnu hruni fjármálakerfisins. Þú er hér er fyrsta íslenska leikritið sem fjallar bein um íslenska hrunið og afleiðingar þess. Verkið var frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins í mars 2009, sex mánuðum eftir fall íslensku bankanna.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica