Djúpið í leikferð á Vestfjörðum í október
Edinborgarhúsið á Ísafirði og Skjaldborg á Patreksfirði daganna 10. - 16. október.
Djúpið, einleikur Jóns Atla Jónassonar í flutningi Ingvars E. Sigurðsson fer í leikferð til Vestfjarða daganna 10. - 16. október.
Sýningin verður í Edinborgarhúsinu á Ísafirði daganna 10. og 11. október og hefst sýningin klukkan 20 öll kvöldin. Síðan verður farið til Patreksfjarðar 16. október þar sem sýningin verður flutt í Skjaldborg og hefst sýningin klukkan 20 þar.
Djúpið er frásögn úr íslenskum veruleika sem lætur engan ósnortinn. Þetta er óður til allra þeirra fjölmörgu, íslensku sjómanna sem í gegnum aldirnar hafa haldið á djúpið.
Djúpið fékkfimmstjörnur í Fréttablaðinu hjá Páli Baldvini og fimm stjörnur einnig í gagnrýni DV. Stórleikarinn Ingvar E. Sigurðsson sem fer með aðalhlutverkið, en verkið var skrifað með hann í huga. Jón Atli Jónasson, höfundur verksins, þreytit hér frumraun sína sem leikstjóri.
