Bláa gullið frumsýnt við mikið lof
Dásamleg sýning um undraheima vatnsins
Í gær var frumsýnd á Litla sviði fyndin og fróðleg trúðasýning þar sem vatn er skoðað út frá sjónarhorni trúðsins á einlægan en trúðslegan hátt. Trúðarnir leiða áhorfendur í gegnum sögu vatnsins og útskýra tilvist þess á jörðinni í gegnum ólíkar kenningar sögunnar. Hvert ætli sé eðli vatns? Hvað er svona merkilegt við það? Hvað er úthaf og hvað er tár, hvað er foss og regn? Hvaðan kemur vatn og hvert fer það? Trúðnum er ekkert óviðkomandi og hann hikar ekki að leggja fram spurningar og vangaveltur um allt milli himins og jarðar. Frumsýningin líkt og verkið sjálft var ævintýralegt ferðalag því einn leikaranna snéri sig illa í byrjun sýningarinnar en trúðurinn Guðfinna lét það ekki trufla og horfði yfir salinn og sagði "the show must go on" og kláraði sýninguna með mikilum glæsibrag en var síða keyrð á slysavarðstofuna þar sem hásinin var dæmd í sundur og leikkonan sett í gifs. Leikhópurinn mun því taka smá breytingum á næstu sýningum en við hlökkum til að fá trúðinn Guðfinnu aftur til liðs við hópinn þegar læknar leyfa.
Sýningin hefur það að markmiði að sýningargestir sjái vatn í nýju ljósi; upplifi margbreytileika, mikilvægi og töfra bláa gullsins. Þrír túðar leiða áhorfendur um sögusvið vatnsins sem hefur verið á stöðugu ferðalagi um jörðina í árþúsundir; undir og á yfirborði hennar, í öllu lífverum og um himingeiminn. Trúðarnir varpa fram ýmsum spurningum um eðli og uppruna vatnsins á fræðandi en trúðslegan hátt! Ragnhildur Gísladóttir sér um hljóðmynd og Gjörningaklúbburinn sér um leikmynd og búninga.
Bláa gullið er samstarfsverkefni Borgarleikhúsins og Opið út, sjálfstætt starfandi leikhús, með Charlotte Böving í broddi fylkingar. Opið út er líkega best þekkt fyrir uppsetningu á Mamma mamma í Hafnarfjarðarleikhúsinu
