Fréttir

Miðar á Fjölskylduna rjúka út

Forsala gengur vel á Fjölskylduna - ágúst í Osagesýslu

20.10.2009

Fjölskyldan - ágúst í OsagesýsluForsalan á Fjölskylduna - ágúst í Osagessýslu fór vel af stað í gær á Fjölskyldan og ljóst að  margir biðu spenntir eftir að geta tryggt sér miða. Miðarnir hreinlega flugu út. Það er mikil eftirvænting hérlendis á að sjá verkið enda á ferðinni margverðlaunað leikrit eftir Tracy Letts, eitt stærsta leikritaskáld Bandaríkjanna í dag. Verkið er sagt fyrsta klassík 21. aldarinnar og er það hverju orði sannara. Leikritið er farið að taka á sig lokmynd og er hún stórglæsileg og ekki er umgjörðin síður stórfengleg - þar sem þriggja hæða húsi hefur verið komið fyrir á Stóra sviðinu. Það stefnir allt í mikla leikhúsveislu á Stóra sviðinu.
Verkið er frumsýnt föstudaginn 30. október næst komandi.

Sjá nánar um verkið



Þetta vefsvæði byggir á Eplica