Jesús litli frumsýnt 21. nóvember á Litla sviðinu
Jólaguðspjallið úr algerlega nýrri átt
Jesús litli eftir þau Benedikt Erlingsson, Berg Þór Ingólfsson, Halldóru Geirharðsdóttur og Kristjönu Stefánsdóttur er glænýtt íslensk leikrit. Hópurinn hefur tekið ekki minna bókmenntaverk en Biblíuna og brjóta sjálft Jólaguðspjallið til mergjar. Þau segja söguna á bak við guðspjallið með augum nútímans og og með tilliti til tvöþúsund ára sögutúlkunar. Verkið er fyndið en um leið mikil harmsaga móður sem er þvinguð til að ala barn í stríðshrjáðu landi.
Í Jesús litla nálgast höfundarnir Jólaguðspjallið úr algerlega nýrri átt og gera söguna að sinni. Það eru trúðarnir einlægu en sannsöglu sem við þekkjum úr Dauðasyndunum þau Barbara og Úlfar sem standa fyrir þessari nýju túlkun með nýjum liðsstyrk. Þau hafa fengið trúðinn Bellu sem Kristjana Stefánsdóttir leikur og leikstjórann Benedikt Erlingsson í hópinn. Saman kryfja þau Jólaguðspjallið og skoða hvað liggur á bak við söguna um fæðingu frelsarans. Á kirkjan einkarétt á Jesú eða kannski bara leikhúsið? Af hverju er fimmta guðspjallið um fæðingu frelsarans ekki prentað? Hvers vegna fæðir kona barn í stríðshrjáðu landi þar sem keisarinn hefur fyrirskipað barnamorð? Það eru stórar spurningar sem hópurinn veltir fyrir sér og fjallar um þær umbúðalaust eins og þeim einum er lagið. Hér er á ferðinni bráðfyndin leiksýning ekki aðeins fyrir þá sem þora að sjá hefðbundnum gildum ögrað heldur einnig fyrir alla hina.
Heimkynni trúðanna er eins og áður Litla svið Borgarleikhússins. Þar ræður einfaldleikinn ríkjum og áherslan er á nálægð áhorfenda við leikarana. Hláturinn hefur ómað á Litla sviðinu öll kvöld það sem af er vetri og er Jesús litli viðbót við gamansemina sem hefur hreiðrað þar um sig.
Höfundar Jesú litla eru þau Benedikt Erlingsson, Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra Geirharðsdóttir og Kristjana Stefánsdóttir. Leikarar eru Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra Geirharðsdóttir og Kristjana Stefánsdóttir. Leikmynd og búninga hannar Snorri Freyr Hilmarsson og um lýsingu sér Kjartan Þórisson. Kristjana Stefánsdóttir annast tónlist og Benedikt Erlingsson leikstýrir. Jesús litli er frumsýnt laugardaginn 21. nóvember.
