Fréttir

Fleiri áskriftarkort en nokkru sinni

18.11.2009

Haustið 2008 hóf Borgarleikhúsið nýja sókn. Þá var metnaðarfullt leikár kynnt og stefnt að fjölgun kortagesta. Árangurinn var með eindæmum. Fjöldi kortagesta ellefufaldaðist frá því sem áður var og voru þeir alls 5.500 á leikárinu 2008-2009 sem var algert met í íslenskri leikhússögu. Þá var heildaráhorfendafjöldi meiri en nokkru sinni fyrr, gestir í Borgarleikhúsinu urðu 207.000 talsins.

Nýtt leikár 2009-2010 var eðlilegt framahald þess síðasta. Stefnt var að því að halda áfram að bæta starfsemina og setja markið hátt. Nú þegar kortasölu lauk hafði kortagestum fjölgað umtalsvert á ný og urðu þeir 9.700 talsins.

Kortagestir Borgarleikhússins velja sjálfir þær fjórar sýningar sem þá langar mest að sjá á hverju leikári og eiga þá öruggt sæti og töfrandi stundir í vændum. Þegar leiksýningarnar nálgast fá þeir áminningu með sms-smáskilaboðum.

Við í Borgarleikhúsinu erum afar þakklát fyrir þann áhuga sem landsmenn sýna starfseminni. Við kappkostum að gera okkar allra besta til að bjóða upp á leiksýningar í hæsta gæðaflokki og skapa ógleymanlegar stundir.

Verið velkomin! 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica