Fréttir

Jesús litli heillar

23.11.2009

Jesús litli vakti mikla hrifningu á frumsýningu á laugardagskvöld. Ljóst var af viðbrögðum gesta að sagan af litla Jesúbarninu í meðförum þeirra Úlfars, Barböru og Bellu snerti og hreyfði við. Fyrstu dómur um sýninguna hafa birst og ljóst er að sýningin hrífur gagnrýnendur ekki síður en áhorfendur. Jón Viðar Jónsson gaf sýningunni fullt hús stiga, fimm stjörnur.

Jón Viðar Jónsson, DV: * * * * *  (5 stjörnur) "Ég bæði skellihló og táraðist... Því þetta er snilld, tær snilld! ... Ykkur er óhætt að trúa mér: Þetta er það langbesta sem sést hefur á fjölum leikhúsanna í haust."

Silja Aðalsteinsdóttir, TMM:

"Söguna segja þau með ýmsum ráðum, leik og söng og látbragði, og blanda inn í hana ótal óvæntum atriðum. Skirrast heldur ekki við að nota nútímavísanir til að koma skilaboðum áleiðis. Þetta verður ómótstæðilegur kokteill sem hlægir mann og grætir og hrærir upp í tilfinningum manns svo maður verður ekki samur lengi á eftir... Hvað getur maður þá sagt að lokum annað en: Ástarþökk fyrir ógleymanlegt kvöld."

María Kristjánsdóttir, Eyjan.is:  áhorfandinn verður allur mjúkur, langar til að faðma að sér heiminn, ekki bara þetta sker, heldur allt sem lifir... allt gengur upp“

Guðmundur Brynjólfsson, Morgunblaðið: “Ég skora á fólk að fara í leikhús og sjá Jesús litla”

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica