Fréttir

KK og Ellen ásamt hljómsveit í Borgarleikhúsinu

Aðventutónleikar 2. des kl. 19.30

26.11.2009

Einn af ómissandi og föstu liðunum í aðdraganda jóla eru aðventutónleikar KK og Ellenar. Í mörg ár hafa þau haldið hefðina og komið saman, ýmist þau tvö eða ásamt hljómsveit sem spilað hefur með þeim. Í fyrra voru tónleikarnir haldnir í Bæjarbíói í Hafnarfirði og komust færri að en vildu. Þetta árið færa þau sig um set og verða á stóra sviði Borgarleikhússins.  Líkt og í fyrra fá þau til liðs við sig nokkra af okkar bestu hljóðfæraleikurum til að skapa með þeim þessa einstöku aðventustemningu sem fylgir þessum tónleikum.

Húsið opnar kl. 19.00 og hefjast tónleikarnir kl. 19.30

Miðaverð er 3.500 kr og er hægt að kaupa miða í miðasölu Borgarleikhússins, á vef Borgarleikhússins hér eða á midi.is.

Sjá viðburð á vef Borgarleikhússins





Útlit síðu:

Tungumál



Gauragangur

Orðheppnasti unglingur Íslands

Gauragangur-450x236-new-Vignetta
 

Enron

Heitasta leikritið í heiminum í dag

Enron_450x236
 

Harry & Heimir

Enn veltast áhorfendur um af hlátri

Harry og Heimir
 

Horn á höfði

Barnasýning ársins 2010

Horn á höfði
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica