Dagur rauða nefsins - trúðboð
Fjöldi listamanna mun taka höndum saman með Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og standa fyrir Degi rauða nefsins. Um kvöldið verður söfnunarþáttur í beinni útsendingu frá Borgarleikhúsinu í opinni dagskrá Stöðvar 2 þar sem grínistar láta ljós sitt skína í þeim tilgangi að safna fé fyrir bágstödd börn um allan heim.
Það verður mikið um grín, glens og spaug í aðdraganda Dags rauða nefsins. Þá verður kímni og hlátri beitt til að koma alvarlegum skilaboðum á framfæri, vekja athygli á bágbornum aðstæðum barna víða um heim og safna fé til verkefna UNICEF fyrir börn sem eiga um sárt að binda. Ýmsir þjóðþekktir einstaklingar taka þátt í átakinu og legga þannig góðu málefni lið, en meðal þeirra má nefna Björn Thors, Ilmi Kristjánsdóttur, Tvíhöfða, Valgerði Guðnadóttur og börnin í Söngvaseiði, Þorstein Guðmundsson, Silju Hauksdóttur, Jóhannes Hauk Jóhannesson, Berg Þór Ingólfsson, Kristjönu Stefánsdóttur og Halldóru Geirharðsdóttur.
Rauð styrktarnef til sölu og lag í tilefni dagsins
Rauðu trúðanefin sem seld eru á 800 kr. til styrktar verkefnum UNICEF koma í verslanir í dag, 25. nóvember, og eru allir landsmenn hvattir til að kaupa nef og gleðja þar með vini og vandamenn um leið og þeir veita bágstöddum börnum stuðning. Nefin fást í verslunum Bónuss og Hagkaups um land allt, sérverslunum Te & kaffi í Reykjavík og Kjarval-Klaustri á Kirkjubæjarklaustri, auk þess sem sífellt fleiri verslanir bætast í hópinn. Þá eru landsmenn einnig hvattir til þess að horfa á Stöð 2 í opinni dagskrá að kvöldi 4. desember og skrá sig sem heimsforeldra, en í útsendingunni mun einvalalið skemmtikrafta og grínista leggja sitt af mörkum til að bæta líf barna sem eiga um sárt að binda.
Lag Ljótu hálfvitanna „Hætt'essu væli“ er í spilun á útvarpsstöðvunum, en það var samið sérstaklega fyrir átakið. Lagið má nálgast á heimasíðu hálfvitanna hér.
Uppruni nefsins
Hugmyndin að baki Degi rauða nefsins er að gleðjast og gleðja aðra, og um leið safna fé fyrir börn sem búa við sára neyð. Fólk fær tækifæri til þess að kynnast aðstæðum barna í fátækari löndum heims og rétta fram hjálparhönd með því að gerast heimsforeldrar.
Dagur rauða nefsins var fyrst haldinn hátíðlegur hérlendis fyrir þremur árum og var árangurinn framar vonum. Upprunalega er hugmyndin runnin undan rifjum bresku góðgerðarsamtakanna Comic Relief, sem voru stofnuð árið 1985. Þar í landi er dagurinn nú haldinn hátíðlegur annað hvert ár sem Red Nose Day og hefur fest sig rækilega í sessi. Allir sem rauðu nefi geta valdið setja upp nef í tilefni dagsins og er auk þess mikið lagt upp úr gríni og galsa á vinnustöðum.
