Fréttir

10.000 gestir á Harry og Heimi

2.12.2009

 

Það varð heldur betur óvænt uppákoma eftir hlé á Harry og Heimi í gærkvöldi þegar tíuþúsundasti gesturinn sótti þessa vinsælu sýningu.  Hinn heppni heitir Jón Torfason en hann var leystur út með gjöfum í miðri sýningu í kjölfar þess að sæti hans byrjaði að titra. Sýningin hefur verið sýnd fyrir troðfullu húsi í allt haust, allt að sjö sinnum í viku. Þegar er uppselt á 40 sýningar til viðbótar og uppselt er út árið. Sala á sýningar í janúar er í fullum gangi.

Leiksýningin Harry og Heimir – með öðrum morðum var frumsýnd á Litla sviði Borgarleikhússins 12. september síðast liðin. Síðan þá hafa verið leiknar 50 sýningar fyrir troðfullu húsi og komast færri að en vilja nú fyrir jólin þar sem uppselt er langt fram í janúar.  Sala er í fullum gangi á sýningar eftir áramót „Við vissum ekkert hvað við vorum að fara út í og áttum ekki von á þessu gríðarlega góðu viðtökum“ segja þér grínistar Kalli, Örn og Siggi „en erum mjög sáttir við viðtökurnar. Það var búið að vera draumur okkar lengi að koma Harry og Heimi úr útvarpinu og upp á svið og hann hefur svona heldur betur ræst.“

Það var Jón Torfason sem var sá heppni og fékk hann veglegan blómvönd, gjafakort í Borgarleikhúsið og geisladiskinn með fyrstu útvarpsleikritunum um þá félaga Harry og Heimi eftir að sýningin var stöðvuð vegna þess að sætið hans titraði og Sigurður Sigurjónsson stöðvaði því sýninguna.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica