Dagur rauða nefsins tókst vel
Sannarlega tóku landsmenn landsátaki Unicef á Íslandi vel á Degi rauða nefsins. Framlög fóru fram úr björtustu vonum Unicef því landsmenn lögðu til rúmlega 150 milljónir króna sem notaðar verða til að bæta líf þúsunda barna sem eiga um sárt að binda.
Dagur rauða nefsins var haldinn í dag og hápunkturinn var fimm klukkustunda skemmtidagskrá sem send var beint út frá Nýja sviði Borgarleikhússins. Dagskráin var einstaklega fjölbreytt og skiptust á hlátur og grátur. Auk skemmtilegra atriða frá innlendum listamönnum voru sýnd átakanleg myndbrot frá þeim löndum sem Unicef leggur börnum lið.
Borgarleikhúsinu er mikill heiður að vera samstarfsaðili átaksins ásamt Stöð 2, Saga Film og fleirum. Listamenn hússins lögðu til vönduð atriði í dagskránna.
Söfnun Unicef stendur enn. Söfnunarsíminn er 562 6262.
