Fréttir

Enron og Ofviðrið

Spennandi verkefni á komandi leikári

8.12.2009

Lucy Prebble höfundur EnronEnron nýtt leikrit eftir Lucy Prebble hefur verið umtalaðasta verkið í Bretlandi undanfarna mánuði. Sýningin hlaut afbragðs dóma og strax í upphafi seldist upp á allar sýningar leikritsins þar í landi. Í framhaldi af velgengninni var ákveðið að flytja verkið í stærra leikhús á West End auk þess hún verður frumsýnd á Broadway í New York í vor og allt stefnir í mikla sigurför verksins um allan heim á næstu misserum. Borgarleikhúsið tryggði sér sýningarréttinn strax að lokinni frumsýningu í Bretlandi og var fyrst leikhúsa til að kaupa réttinn eftir frumuppfærslu þess. Þegar var hafin undirbúningur uppsetningar og var Eiríkur Örn Norðdahl fenginn til að þýða leikritið. Frumsýning í Borgarleikhúsinu verður næsta haust, 2010.  

Mikið hefur verið fjallað um leikritið í stærstu fjölmiðlum heims. Í gær fjallaði CNN ítarlega um velgengi leikritsins, fyrirhugaða frumsýningu þess á Broadway og sagði frá því að Columbia Pictures hefur keypt réttinn til að kvikmynda söguna. Ekki er enn ljóst hver muni fara með hlutverk aðalskúrksins Jeff Skilling í uppfærsu Borgarleikhússins en æfingar á verkinu hefjast á komandi vori.
Enron var sjöunda stærsta fyrirtæki Bandaríkjanna þegar það hrundi árið 2001. Eftir gjaldþrotið varð ljóst að efnahagur félagsins byggðir á tilbúnum tölum og að forysta þess einkenndist af lygum og svikum. Þetta kostaði forstjórann Jeff Skilling 24 ára fangelsisdóm. Hinn höfðupaurinn, stjórnarformaðurinn Kenneth Lay, lést áður en hann kom fyrir dómstóla.

Bergþóra Jónsdóttir, blaðamaður Morgunblaðsins sagði frá Enron í grein sinni Enron í litum leikhússins sem finna má í greinasafni Morgunblaðsins.

 

Jólasýningin 2010 - Ofviðrið

Síðast liðið vor tilkynnti Borgarleikhúsið að Jólasýning leikhússins árið 2010 yrði Ofviðrið eftir William Shakespeare í leikstjórn eins fremsta leikstjóra heims, Oskarasar Korsunovas. Leikhúsáhugafólki gefst tækifæri til að kynna sér sviðsetningu Korsunovas á frægu Shakespeare verki þegar uppsetning hans á Rómeó og Júlíu kemur hingað sem gestaleikur frá Litháen á Listahátíð í Reykjavík í samvinnu Borgarleikhúss og Listahátíðar í Reykjavík.

Jóhann Bjarni Kolbeinsson, blaðamaður á Morgunblaðinu sagði frá ráðningu Korsunovas í sumar: Einn virtasti leikstjóri heims í Borgarleikhúsinu sem finna má í greinasafni Morgunblaðsins.

Það er margt gott er í vændum á leikárinu 2010-2011 í Borgarleikhúsinu.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica