Fréttir

Kristjana Stefánsdóttir og tríó með jóladjass

Tónleikar - jóladjass í forsal Borgarleikhússins 17. des kl. 22.00

8.12.2009

Kristjana Stefánsdóttir og tríóKristjana Stefánsdóttir söngkona ásamt tríói skipuðu þeim Kjartani Valdemarssyni á píanó, Gunnari Hrafnssyni á bassa og Pétri Grétarssyni á trommur munu djassa inn jólin í forsal Borgarleikhússins 17. desember.

Á tónleikunum munu þau leika og syngja jólalög ásamt gestum úr leikhúsinu þeim Guðjóni Davíð Karlssyni, Hallgrími Ólafssyni, Bergi Þór Ingófssyni og Halldóru Geirharðsdóttur.

Djasskvartettinn hefur undanfarin ár haldið jólatónleika í Salnum en ákváðu að færa sig yfir í leikhúsið og skapa skemmtileg jóladjass stemmingu í forssal hússins þar sem gestir geta gætt sér á ljúfum veitingum undir þýðum djasstónum og komist í hátíðarskap.

Tónleikarnir hefjast kl. 22.00 og er hús opnað kl. 21

Miðaverð er 1.500 kr, hægt að kaupa miða í miðasölu Borgarleikhússins, á borgarleikhus.is eða á midi.is

Leikhúsgestir kvöldsins fá sértilboð á tónleikana - 1.000 kr.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica