Fréttir

Faust í Endurmenntun

Námskeið í samvinnu Borgarleikhúss og Endurmenntunar HÍ

14.12.2009

Námskeið um Faust og uppsetningu í Borgarleikhúsinu á leikgerð Vesturports hófst 8. desember hjá Endurmenntun HÍ. Námskeiðið er samvinnuverkefni Endurmenntunar og Borgarleikhúsins og er námskeiðið vel sótt eins og ávallt þegar boðið er upp á slík námskeið. Á námskeiðinu verður fjallað um verkið, þjóðsöguna og uppsetningu Vesturports.
Námskeiðið byggir á tveimur fyrirlestrarkvöldum og lokaæfingu leikverksins. Í lok æfingarinnar ræða leikstjóri og samverkafólk hans um væntanlega sýningu, vinnuaðferðir og ætlunarverk og svara spurningum og vangaveltum þátttakenda. Fyrsti fyrirlestur var í liðinni viku og var fjölsóttur af fróðleiksfúsum nemendum sem enda 14. janúar á forsýningu á Faust í Borgarleikhúsinu. Næsti fyrirlestur námskeiðsins verður þriðjudaginn 15. desember.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica