Mikið um að vera í leikhúsinu um jólin
Sýningar á öllum sviðum milli jóla og nýárs
Það er mikið um að vera í Borgarleikhúsinu um jólahátíðina, stórsýningin Fjölskyldan, sem hlotið hefur hreint út sagt frábærar viðtökur leikhúsgesta, verður sýnd á milli jóla og nýárs þann 29. og 30. desember. Á Stóra sviðinu heldur einnig áfram vinsælasti söngleikur þessa árs, Söngvaseiður. En góðir leikhúsvinir: Sýningum fer fækkandi á nýju ári og mun Söngvaseiður kveðja í lok janúar til að rýma fyrir nýjum sýningum á Stóra sviðinu eftir hátt í 100 sýningar fyrir fullu húsi frá því í vor.
Á Litla sviðinu halda trúðarnir áfram með fimm stjörnu leiksýninguna sína Jesús litli sem minnir okkur á jólaboðskapinn og ljósið í heiminum með sinni guðdómlega fyndnu leiksýningu. Harry og Heimir verða einnig á Litla sviðinu yfir hátíðirnar því ekkert lát er á vinsældum þeirra félaga og nú er að verða uppselt út janúar.
Á Nýja sviðinu verður síðasta sýning á Rautt brennur fyrir þann 29. desember. Verkið er frumraun Heiðars Sumarliðasonar leikskálds. Ein sýning á Djúpinu verður þann 30. desember. Einleikur Jóns Atla Jónassonar hefur heldur betur snert streng í hjörtum þjóðarinnar og túlkun Ingvars E. Sigurðssonar á sjómanninum sem syndir fyrir lífi sínu eftir sjávarháska á Íslandsmiðum er óaðfinnanleg.
