Fréttir

Gjafakortasala aldrei meiri

23.12.2009

 

Gjafakort í Borgarleikhúsið er afar vinsæl jólagjöf þessi jólin því aldrei hafa fleiri kort selst en nú í desember.   Þar með er slegið met leikhússins frá því í fyrra.  Þá hafa aldrei selst fleiri kort á einum degi en í gær en þá seldust nær 2500 gjafakort í leikhúsið.  15.000 gjafakort hafa þegar selst í desember. Almenn gjafakort í Borgarleikhúsið eru opin og gilda á sýningu að eigin vali en einnig hafa sérstök gjafakort á Söngvaseið og Gauragang þar sem geisladiskur og bók fylgja með, notið mikillar hylli.  

Þessi sprenging í gjafakortasölu leikhússins kemur í  kjölfar aðsóknarmesta ársins í sögu Borgarleikhússins en nú í haust hafði áskriftarkortasala tuttugufaldast á rúmu ári.

„Við höfum aldrei upplifað annað eins og gjafakortasöluna fyrir þessi jól og þó hef ég verið hér í leikhúsinu í nær tuttugu ár.  Stemningin er einstök enda gestir okkar í sannkölluðu jólaskapi þegar þeir heimsækja okkur hér í miðasölunni. Hér hefur verið röð út úr dyrum alla síðustu viku og því höfum við fjölgað starfsfólki til að anna eftirspurn“, segir Guðrún Stefánsdóttir miðasölustjóri Borgarleikhússins.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica