Fréttir

Söngvaseiður - vinsælasti söngleikur ársins kveðjur í lok janúar

Söngvaseiður - sýningum lýkur á nýju ári

29.12.2009

 

Úr SöngvaseiðÞað hefur verið mikið fjör í kringum vinsælasta söngleik ársins sem mun kveðja í lok janúar til að rýma til fyrir nýjum verkum á Stóra sviðinu. Það er því hver að verða síðastur að tryggja sér miða á þessa einstöku sýningu. 

Saga uppsetningarinnar er einstök: Í upphafi var efnt til áheyrnarprufa sem eru þær stærstu sem sögur fara af í íslensku leikhús þar sem 4000 börn kepptu um tólf hlutverk. Forsala var meiri en nokkru sinni fyrr hérlendis og voru rúmlega 25 sýningar uppseldar þegar verkið var frumsýnt. Sýningin hlaut afbragðs viðtökur og Valgerður Guðnadóttir hlaut Grímuverðlaunin fyrir túlkun sína á Maríu. Börnin bræddu unga sem aldna.  Geisladiskurinn með tónlistinni hefur selst í bílförmum.

Þetta hefur verið mikið ævintýri og alltaf gaman þegar svo mannmörg verkefni eru á fjölunum. Tólf frábær börn hafa tekið þátt í sýningunni og heldur betur lífgað upp á hana með heillandi leik sínum og framkomu, jafnt  inná sviði sem utan þess. Lifandi hljómsveit spilar undir og leik-, söng- og dansarar gæða sýninguna töfrum. 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica