Fréttir
Jóla- og áramótakveðja Borgarleikhúsins

Gleðilegt nýtt ár

Við bjóðum landsmönnum gleðilegs nýs árs og þökkum frábærar móttökur á liðandi ári

31.12.2009

Starfsfólk Borgarleikhússins þakkar framúrskarandi viðtökur á árinu 2009  sem er það aðsóknarmesta í sögunni.
Við munum halda áramótin hátíðleg og verður miðasala lokuð yfir hátíðarnar, en við minnum á vef Borgarleikhússins – þar er hægt að kaupa miða og gjafakort allan sólahringinn alla daga ársins. Við opnum miðasöluna aftur kl. 12. laugardaginn 3. janúar og verðum þá með þrjár af vinsælustu sýnunum ársins á fjölunum. Söngvaseiður er kl. 14, en kæru leikhúsgestir sýningum fer fækkandi á þessum vinsælasta söngleik síðasta árs og hverfur af fjölununum í lok janúar. Fjölskyldan tekur við kl. 19 – sannkölluð leikhúsveisla þar enda á ferð eitt af stórvirkjum leikhúsbókmenntanna síðustu ár. Á Litla sviðinum stíga síðan trúðar á svið kl. 20 og flytja okkur verkið Jesús litli, fimm stjörnu leiksýning sem gagnrýnendur segja þá bestu sem sést hefur þennan veturinn í íslensku leikhúsi.
Við byrjun því nýtt ár með flugeldasýningu líkt og leikárið byrjaði í haust og munum halda svoleiðis áfram. Tvær frumsýningar verða í janúar, ný leikgerð Vesturport á Faust verður frumsýnd á Stóra sviðinu 15. Janúar og Góðir Íslendingar, óritskoðuð heimild um íslenskan samtíma á Nýja sviðinu. Það er því ekki spurning um að byrja nýtt ár í Borgarleikhúsinu. Velkomin í Borgarleikhúsið.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica