Fréttir

Faust verður til

Spennandi leikrit að fæðast á Stóra sviðinu

4.1.2010

Lokaspretturinn fyrir frumsýningu á Faust er hafinn. Æfingar hafa gengið framúrskarandi vel og allt að verða tilbúið fyrir frumsýningu þann 15. janúar næstkomandi. Með hverjum degi færist meira líf í sýninguna, leikmyndin er tilbúin, ýmsar tæknilegar lausnir eru að slípast til, leikararnir hver öðrum betri í fimleikaatriðum og ólíkindalátum enda hefst hver einasti dagur með ströngum leikfimiæfingum. Þau hoppa, fljúga, stökkva, - og hverfa. Það er bókstaflega ekkert gefið eftir. Ómótstæðilega sjónhverfingar eins og þær gerast bestar og spennan að ná hámarki. Eins gott að vera vel stilltur á miðasölu Borgarleikhússins á morgun, þriðjudag, þegar forsalan hefst á slaginu 10:00.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica