Fréttir

Forsala á Faust fer vel af stað

Mikið að gera í miðasölunni það sem af er degi

5.1.2010

Það er mikil stemming í miðasölu Borgarleikhússins í dag. Forsala á Faust hófst með pomp og prakt klukkan 10 í morgun og ljóst að mikill áhugi er fyrir sýningunni. Frumsýning er 15. janúar á Stóra sviðinu. Uppselt er að verða á fyrstu sýningarnar og því ljóst að leikhúsáhugafólk bíður spennt eftir að sjá þetta nýjasta verk Vesturports í leikstjórn Gísla Arnars Garðarssonar. Það er því ljóst að þeir sem ætla sér að sjá fyrstu sýningarnar þurfa að hafa hraðann á.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica