Fréttir

Borgarleikhúsið kynnir nýjan leikhúsmann

Endurómun í Borgarleikhúsinu 13. og 14. janúar

8.1.2010

Borgarleikhúsið kynnir stolt nýjan leikhúsmann til sögunnar, Leif Þorvaldsson sem útskrifaðist úr Fræði og framkvæmd frá Listaháskóla Íslands síðastliðið vor. Útskriftarverk Leifs, Endurómun, kemur á fjalir Borgarleikhússins þann 13. og 14. janúar á Litla sviðinu. Athugið aðeins þessar tvær sýningar. Leikhúsáhugafólki gefst hér einstakt tækifæri á að sjá þetta metnaðarfulla verk sem færði höfundinum hæstu einkunn við útskrift.  Verkið var sett á svið í Listaháskólanum síðast liðið vor og segir meðal annars í umsögn prófdómaranna um sýninguna: „Verkið var mjög vel unnið, í raun einstakt og sú upplifun sem áhorfendum var gefin er mögnuð.“ Endurómun er hrein skynupplifun sem tekst að bjaga og teygja á skynfærum áhorfandans um leið og sýningin veitir okkur innsýn í nýjustu kenningar um mannsheilann. Útskýrð verða grunnferli skynjunar, minninga og drauma.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica