Fréttir

Faust frumsýnt í kvöld

Flugeldasýning á Stóra sviðinu

15.1.2010

Faust-13Það verður flugeldasýning á Stóra sviðinu í kvöld þegar leikritið Faust verður frumsýnt. Þetta er ný leikgerð á hinu sígilda verki Faust innblásin af verki Goethe en fá verk hafa oftar verið endurskrifuð.Í hinni nýju leikgerð fer höfundahópurinn sínum höndum um þessa sígildu sögu og setja hana í  ferskan búning líkt og þau eru þekkt fyrir. Leikrýmið er óvenjulegt því fyrir utan að leika á hinu hefðbundna leiksviði er leikurinn dreginn upp í háloftin yfir áhorfendasalnum.  Leikstjórinn Gísli Örn Garðarsson nýtir sem fyrr reynslu sína úr fimleikum til að bæta nýrri vídd inn í leikhúsið. Það er úrvals leikhópur í sýningunni og stendur þar hæst endurkoma Þorsteins Gunnarssonar á svið Borgarleikhússins en hann fer með hlutverk öldungsins Faust en meðal annarra leikara eru Hilmir Snær Guðnason, Björn Hlynur Haraldsson og Unnur Ösp Stefánsdóttir sem leikur hina undurfögru Grétu. Tónlist semja þeir Nick Cave og Warren Ellis. Þetta er fimmta sýningin sem Borgarleikhúsið og Vesturport vinna saman, en áður hafa Rómeó og Júlía, Ást, Woyzeck og Kommúnan sviðsett í Borgarleikhúsinu. Þessi samvinna hefur borið ríkulegan ávöxt og sýningarnar ferðast víða um heim og hlotið mikið lof.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica