Góðir Íslendingar frumsýnt á Nýja sviðinu í kvöld
Hárbeitt ádeila um íslenska þjóð
Í kvöld verður frumsýnt á Nýja sviðinu nýtt íslensk leikverk Góðir Íslendingar eftir þá Hall Ingólfsson, Jón Pál Eyjólfsson og Jón Atla Jónasson. Verkið er hárbeitt ádeilda á íslenskt samfélag og hvernig við glímum við afleiðingar efnahagshrunsins sem á okkur dundi. Í Góðir Íslendingar er verið að skoða sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar sem birtist m.a. í húsunum sem við byggðum og bílunum sem við keyptum en einnig í því hvernig við komum fram og tjáum okkur á veraldarvefnum og í lífinu yfirleitt. Við erum öll undir smásjánni í verkinu, það sem áður þótti merki um velgengni vekur nú óhug okkar. Þeir Hallur, Jón Atli og Jón Páll halda áfram þaðan sem frá var horfið í sýningunni Þú ert hér sem fékk verðskuldaða athygli á fjölum Borgarleikhússins á síðasta ári. Hún hlaut fimm Grímutilnefningar, meðal annars sem sýning ársins og leikverk ársins. Þeir félagar rýna í íslenskan samtíma og hefur sú könnun aldrei verið brýnni en einmitt nú þegar þjóðfélaginu hefur verið snúið á hvolf. Hárbeitt samtímaleikhús unnið upp úr óritskoðuðum heimildum úr lífi Íslendinga.
Höfundar handrits: Hallur Ingólfsson, Jón Páll Eyjólfsson og Jón Atli Jónasson
Leikstjórn, leikmynd og myndband: Hallur Ingólfsson, Jón Páll Eyjólfsson og Jón Atli Jónasson
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Leikarar: Hallur Ingólfsson, Jón Páll Eyjólfsson, Jón Atli Jónasson, Bergur Þór Ingólfsson, Dóra Jóhannsdóttir, Halldór Gylfason og Halldóra Geirharðsdóttir
Dómar um fyrri sýningu þríeykisins, Þú ert hér, sem frumsýnd var í mars 2009:
„Í fyrsta skipti, svo ég muni eftir, bregst íslenskt atvinnuleikhús samstundis við atburðum sem eru að gerast í núinu.“
María Kristjánsdóttir, Morgunblaðið
„Pólitískt leikhús er varla til á Íslandi, ekki enn. Nýleg undantekning er sýningin Þú ert hér.“
Þorvaldur Gylfason, Fréttablaðinu
